26.08.2014
Togarinn Klakkur kom inn til löndunar í gær úr síðustu makrílveiðiferðinni. Lagði hann af stað í gærkvöld í hefðbundinn þorskveiðitúr eftir að hafa tekið veiðarfæri og annað tilbehör. Eitthvað hefur ákafinn verið mikill að komast á veiðar og hraustlega gefið í, því eldur varð laus í skorsteinshúsi. Ekki hafði verið lengi siglt og var því rennt upp að bryggju og eldur slökktur með aðstoð Brunavarna Skagafjarðar. Einhverjar skemmdir hafa orðið því skipið er ekki farið til veiða er þetta er skrifað, en reiknað er með brottför um hádegi.