1. gr.
Almenn ákvæði.
Gjaldskrá þessi fyrir Sauðárkróks- og Hofsóshöfn er sett samkv. heimild í 17. grein hafnalaga
nr. 61/2003 ásamt breytingu með lögum
nr. 28/2007, 145/2007, 88/2010 og 60/2014
Gjaldskráin er við það miðuð að hafnirnar geti haft nægar tekjur til þess að standa undir
rekstri sbr. 5 tölulið 3 gr. hafnalaga.
2. gr.
Um gjaldtöku tengdri stærð skipa.
Við ákvörðun gjalda, sem taka mið af stærð skipa, skal miða við brúttótonnatölu skipa
samkvæmt alþjóðlegu mælingarbréfi, sem gefið er út í samræmi við alþjóðasamþykktina um
mælingu skipa frá 1969.
3. gr.
Af öllum skipum skal greiða tilheyrandi gjöld til hafnarsjóðs ef þau koma inn fyrir takmörk
hafnarinnar og njóta þjónustu hennar.
4. gr.
Skipagjöld.
Lestargjöld.
Af öllum skipum skal greiða lestargjald, kr. 19,18 á mælieiningu samkv. 2. gr. en þó ekki
oftar en tvisvar í mánuði.
Bryggjugjöld.
Af öllum skipum sem leggjast við bryggju eða hafnarbakka skal greiða samkvæmt
eftirfarandi:
Skip við bryggju kr. 9,02 á mælieiningu fyrir hverja byrjaða 24 tíma, sem skip liggur bundið.
Árgjald báta 0-20 BT. kr. 69.054 bátar undir 6m greiði hálft gjald.
Mánaðargjald báta 0-20 BT.
kr. 9.249
Mánaðargjald báta 20–100 BT.
kr. 18.496
Einkaleiga við flotbryggju og harðviðarbryggju verði:
Árgjald
kr. 131.909
Mánaðargjald
kr. 16.491
Heimilt er að leggja á allt að fimmföld bryggjugjöld á skip og báta sem liggja um lengri tíma
við bryggju og hafa verið án haffærisskírteinis í a.m.k. 6 mánuði.
Heimilt er að leggja þreföld bryggjugjöld á skip og báta sem óska eftir langtíma viðlegu vegna
annarrar starfsemi en útgerðar.
Undanþegin greiðslu bryggjugjalds eru herskip, varðskip og skip, sem gerð eru út til
vísindalegra rannsókna, svo og skip sem leita hafnar vegna sjóskaða eða til að láta í land sjúka
menn eða látna, svo fremi þau hljóti ekki frekari þjónustu.
5. gr
Vörugjöld.
Vörugjald skal greiða af öllum vörum sem fluttar eru af skipsfjöl á land eða úr landi á
skipsfjöl, eða úr einu skipi í annað, innan takmarka hafnarinnar, þó með þeim
undantekningum er síðar getur.
6. gr.
Fyrir vörur sem samkvæmt farmskrá skips eru ákveðnar til annarar hafnar, innlendrar eða
erlendrar, en eru látnar á land um stundarsakir, skal aðeins greitt vörugjald þegar vörurnar eru
fluttar í land. Undanþegnar þessu gjaldi eru vörur sem látnar eru á land um stundarsakir vegna
skemmda á skipi.
7. gr.
Af vörum, sem fluttar eru á skip og fara eiga til annarra hafna innanlands greiðist hálft
vörugjald.
Af vörum sem koma frá útlöndum og fara eiga áfram til útlanda er heimilt að innheimta fullt
vörugjald þegar vörurnar eru fluttar á land.
8. gr.
Þessar vörur eru algjörlega undanþegnar vörugjaldi:
a)
Umbúðir sem endursendar eru.
b)
Olía, vistir og aðrar nauðsynjar skipa til eigin notkunar.
c)
Almennar póstsendingar og farangur ferðamanna.
d)
Úrgangur til eyðingar.
9. gr.
Vörugjald reiknast eftir þyngd eða verðmæti, með umbúðum og af hverri sendingu sérstaklega.
Fara skal eftir farmskrá skipa við útreikning vörugjalds. Skipstjóri eða afgreiðslumaður skips
skal láta höfninni í té afrit af farmskrá. Sé engri farmskrá til að dreifa skal skipstjóri gefa
drengskaparvottorð um vörumagn sem fermt hefur verið eða affermt úr skipi hans. Þyki
hafnarstjóra ástæða til getur hann hvenær sem er látið ákveða vörumagnið á þann hátt sem hann
telur hentugast. Reynist vörumagnið vera meira en upp er gefið greiðir farmeigandi kostnaðinn.
Séu fleiri en ein vörutegund í sendingu ósundurliðað skal reikna vörugjaldið eftir þeirri tegund
sem hæst gjald skal greiða af.
10. gr
Vörur skal flokka til vörugjalds eftir því sem vörugjaldskrá tiltekur og gjaldið greiðist eins og
hér segir.
Vörugjaldskrá.
1. fl.:
Gjald kr. 358,64 fyrir hvert tonn:
Heilfarmar og stórsekkjavara, svo sem, kol, laust korn, salt, vikur, sandur,
kísilgúr, þörungamjöl, sement, áburður og úrgangur sem fluttur er til
endurvinnslu.
2. fl.:
Gjald kr. 449,46 fyrir hvert tonn:
Bensín, brennsluolíur, lýsi og fiskimjöl.
3. fl.:
Gjald kr. 745,47 fyrir hvert tonn:
Þungavarningur, svo sem sekkjavörur, óunnið járn og stál, timbur, veiðarfæri,
smurningsolíur, sjávarafurðir, landbúnaðarafurðir, hráefni til iðnaðar og
byggingarframkvæmda. Pökkuð og niðursoðin matvæli, óáfengar
drykkjarvörur og ávextir.
4. fl.
Gjald kr 2.138,43 fyrir hvert tonn:
Aðrar vörur sem ekki eru tilgreindar í flokkum 1-3.
5. fl.:
Gjald 1,6%. Sjávarafli lagður á land eða í skip á hafnarsvæðinu til vinnslu eða
brottflutnings, þ.m.t. fiskur og seiði úr eldiskvíum. Gjaldið reiknast af
heildarverðmæti aflans.
Gjald af frystum afla frystitogara og eldisfiski reiknast af helmingi heildarverðmætis.
Gjald af saltfiski reiknast miðað við tvöfalda þyngd og gjald af gámafiski reiknast af áætluðu
heildarverði.
Seljanda aflans ber að afhenda hafnarstjóra skýrslu um seldan afla um leið og sala hefur átt sér
stað, t.d. afrit af aflaskýrslu til Fiskistofu. Aflagjaldið fellur í gjalddaga um leið og afla er
landað.
Um aflagjald af grásleppuhrognum gildir sama regla og með landaðan bolfisk og skal
útgerðarmaður eða verkandi skila til hafnaryfirvalda skýrslum um heildar verðmæti
hrognana.Verði þeim ekki skilað munu hafnaryfirvöld ná í þær tölur inn á vefsíðu Fiskistofu
sem vigtarmenn hafa aðgang að.
Seljandi ber skil á greiðslu aflagjalds.
11. gr.
Leiga á gámasvæði, geymsla veiðarfæra og báta
Leiga fyrir geymslusvæði skal vera eftirfarandi:
Geymsla á malbikuðu svæði pr. fermetri á mánuði,
kr. 139,93
Langtímaleiga fyrir 40 ́geymslugáma trillukarla
kr. 15.419,62
Geymsla á veiðarfærum og öðrum búnaði eða bátum á hafnarköntum er gjaldfrjáls í 5 daga.
Þá greiðast 3.330 kr á hvern hafinn sólarhring.
Geymsla er aðeins heimil með leyfi hafnarvarða.
12. gr.
Sorphirða
Samkvæmt lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda nr. 33/2004 og reglugerð nr.
1200/2014 ber skipstjóri ábyrgð á að úrgangi frá skipi sé skilað til hafnar eða viðurkennds
þjónustuaðila áður en látið er úr höfn.
Skipstjóri, eigandi skips eða þjónustuaðili skal undantekningalaust skila fyrir komu skips til
hafnar útfylltu eyðublaði til hafnarinnar um magn og tegund þess úrgangs sem skilað skal á
land. Misbrestur á því getur leitt til tilkynningar til Umhverfisstofnunar.
Skip sem óskar eftir að Skagafjarðarhafnir taki á móti úrgangi skal tilkynna um það að lágmarki
48 klst fyrir komu til hafnar.
Öll skip sem falla undir c-lið 11. gr. í lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda nr. 33/2004
skulu greiða eftirfarandi vegna úrgangs:
a.
Úrgangsgjald: Við komu skips til hafna skal skip greiða 0,91 kr. á BT. Gjald þetta skal
standa undir eftirliti og umsýslu hafnar vegna móttöku á úrgangi. Lágmarksgjald
samkvæmt þessum lið er kr. 6.513,16 og hámarksgjald kr. 59.106,70
b.
Úrgangsgjald: Gjald skv. a-lið má lækka ef umhverfisstjórnun, hönnun, búnaður og
starfræksla skips er með þeim hætti að skipstjóri geti sýnt fram á að minni úrgangur
verði til um borð. Fast gjald verður þá 0,43 kr. á BT. Lágmarksgjald samkvæmt þessum
lið er 6.513,16 kr. og hámarksgjald kr. 29.552,79.
c.
Úrgangsgjald: Skip og bátar sem koma oftar en fjórum sinnum til hafnar á sama
almanaksári greiða samkvæmt b-lið fyrir fimmtu komu og komur eftir það.
d.
Úrgangsgjald: Skip og bátar sem eru undir 60 m að lengd og hafa varanlega viðveru í
Skagafjarðarhöfnum skulu greiða fast mánaðargjald vegna eftirlits og umsýslu hafnar
vegna móttöku á úrgangi. Mánaðargjaldið skal vera kr. 6.513,16 á mánuði.
e.
Förgunargjald: Við komu til hafnar skulu öll skip sem falla undir 11. gr. laga nr.
33/2004 greiða förgunargjald óháð því hvort þau skila úrgangi í land. Förgunargjaldið
skal standa á undir förgun á úrgangi sem skilað er á land: Farþegaskip yfir 60 m á
lengd skulu greiða 1,96 kr. á BT. Gjaldið miðast við eftirfarandi sorpmagn:
Farþegarskip undir 30.000 BT: 5 m³
Farþegaskip frá 30.000 BT til 100.000 brt: 10 m³
Farþegaskip yfir 100.000 BT: 15 m³
Önnur skip skulu greiða 2,38 kr. á BT: Gjaldið miðast við 5 m³ af sorpi.
Greiða skal samkvæmt h-lið fyrir sorp sem fer umfram ofangreinda viðmiðun.
Skip og bátar sem eru undir 60 m á lengd og hafa varanlega viðveru hjá
Skagafjarðarhöfnum skulu háðir sérstöku samkomulagi sem m.a. taki á lögum og
reglum um skil á sorpi.
Lágmarksgjald samkvæmt þessum lið er kr. 63.932,22
f.
Förgunargjald: Leiti skip til viðurkennds aðila um móttöku á úrgangi getur það fengið
álagt förgunargjald skv. e-lið endurgreitt enda skili það áður kvittun móttökuaðilans
ásamt réttum upplýsingum um losað magn. Skilyrði endurgreiðslu kostnaðar er að
kvittun móttökuaðila hafi borist Skagafjarðarhöfn innan tveggja sólarhringa frá brottför
skips.
g.
Samkvæmt 11. gr. reglugerðar nr. 1200/2014 getur Umhverfisstofnun veitt skipum í
áætlunarsiglingum, sem hafa reglulega viðkomu í höfnum og sýna fram á trygga
afhendingu úrgangs og greiðslu gjalda í hverri höfn á siglingaleiðinni undanþágu frá
afhendingu úrgangs. Skipstjóri eða eigandi skips sem fengið hefur undanþágu frá
Umhverfisstofnun um afhendingu úrgangs eða skilum á tilkynningum, skal framvísa
gildri staðfestingu þess efnis.
h.
Skip sem undanþegin eru gjaldskyldu skv. 1. tl. 2. mgr. 17. gr. og c-lið 11. gr. Hafnarlaga
nr. 33/2004 skulu greiða fyrir móttöku hafnar og förgun á almennu sorpi. Lágmarksgjald
hafnar fyrir móttöku á úrgangi er kr. 13.477,78 á hvern m³ og lágmarksgjald einn
rúmmetra. Annist höfnin móttöku á spilliefnum eða sérstökum úrgangi sem hefur í för
með sér kostnað umfram förgun á almennu sorpi greiðir viðkomandi aðili þann kostnað
sem til fellur.
Skemmtibátar greiði kr. 1.545,68 á ári.
13. gr.
Hafnsögugjöld.
Samkvæmt hafnarreglugerð fyrir Sauðárkrókshöfn er öllum skipum lengri en 70 m að
undanteknum innlendum fiskiskipum, skylt að taka hafnsögumann við siglingu um hafnasvæði
Sauðárkróks. Fyrir leiðsögn til hafnar eða lægi skal greiða fast gjald kr. 80.775 Hafnarstjóra er
heimilt að veita skipstjóra skips sem skylt er að lútahafnsögu skv. þessari grein, undanþágu frá
hafnsögu sbr. hafnarreglugerð nr. 209/2022
14. gr.
Þjónusta hafnsögubáts.
Fyrir flutning á hafnsögumanni greiðist kr. 53.312, fast gjald.
15. gr
Þjónusta dráttarbáts
Tímagjald fyrir aðstoð dráttarbáts miðast við brúttóstærð skips, kr. 11,55 á BT.
Lágmarksgjald á klst. er kr. 83.791
Lágmarkstími fyrir aðstoð er 2 klst. Fylgi dráttarbátur skipi til öryggis í eða úr höfn, er tekið
hálft gjald.
Þegar dráttarbátur flytur hafnsögumann og aðstoðar einnig skipið eða er til öryggis, fellur
gjald fyrir flutning hafnsögumanns niður.
16. gr.
Festargjöld.
Festargjald dagvinna kr. 16.440,64
Festargjald næturvinna kr. 27.768,17
Festargjöld stórhátíðarvinna kr. 42.188,97
Gjaldið miðast við einn mann.
Þegar skip leggur að bryggju skal starfsmaður hafnarinnar taka á móti því.
17. gr.
Vatnssala.
Vatnsgjald:
Kalt vatn til skipa
kr. 349,81 á m3.
Heitt vatn til skipa
kr. 400,48 á m3.
Lágmarksgjald miðað við 10 m3.
18. gr.
Rafmagnssala.
Rafmagn:
Sauðárkrókshöfn
kr. 24,01 á kwst.
Hofsóshöfn
kr. 24,01 á kwst
Tengilgjald
kr. 5.762
Rafmagn á flotbryggju og harðviðarbryggju er með 20% afslætti.
Rafmagnsgjöld geta tekið breytingum án fyrirvara vegna gjaldskrárbreytinga birgja
hafnarinnar hverju sinni.
19. gr.
Vigtargjald.
Vigtargjöld:
Vigtun á sjávarfangi kr. 195,46 á tonn, þó ekki lægra en kr. 1.950.
Öll almenn vigtun kr. 269,95 á tonn þó ekki lægra en kr. 2.690
Einstök vigtun kr. 2.700.
Þjónustugjöld fiskiskipa undir 100 BT.
Vigtunargjald pr. Vigtun
kr. 1.747,84
Sorpgjald pr. Mánuð
kr. 622
Milli 17:00 og 22:00 verða einnig innheimtir 2 tímar í næturvinnu.
Eftir kl. 22:00 til 08:00 næsta dag, svo og laugardaga, sunnudaga og aðra helgidaga, verða, ef
nauðsynlegt reynist að ræsa út til vigtunar á þeim tíma, innheimtir 4 tímar í næturvinnu
samkvæmt gjaldskrá. Deilist á milli báta séu fleiri en einn að landa á svipuðum tíma.
Úrtaksvigtun. Af sjávarafla frystitogara eða öðrum þeim skipum er frumlanda sjávarfangi í
Sauðárkrókshöfn skal greiða skráningargjald sem er kr
.
195,46 á landað tonn ef skráð er í
GAFL, kerfi Fiskistofu.
Útkall milli kl. 17:00 og 08:00 virka daga svo og um helgar og helgidaga, greiðist sérstaklega
kr. 6.963,38 pr. klst., getur tekið breytingum án fyrirvara með nýjum kjarasamningum. Á
sérstökum helgidögum greiðist stórhátíðisyfirvinna 10.547,24 kr pr. klst.
20. gr.
Hafnavernd.
Gjald vegna hafnaverndar er eftirfarandi.
Öryggisgjald (fastagjald)
kr. 49.311,88
Öryggisgæsla:
a)
dagvinna
kr. 5.350,54
b)
næturvinna
kr. 6.962,38
Getur tekið breytingum án fyrirvara með nýjum kjarasamningum.
21. gr.
Farþegagjald
Farþegagjald skal greiða af hverjum farþega ferðaþjónustubáta og skemmtiferðaskipa. Gjaldið
er kr. 201. Skipstjóri, umboðsmaður eða eigandi farþegaskips skal afhenda hafnaryfirvöldum
upplýsingar um farþegafjölda til innheimtu gjaldsins. Skipstjórar, umboðsmenn eða eigendur
þeirra báta sem stunda reglubundna farþegaflutninga skulu skila upplýsingum um farþegafjölda
mánaðarlega og skal upplýsingum skilað eigi síðar en 7. hvers mánaðar fyrir næstliðinn mánuð.
22. gr.
Um innheimtu og greiðslu gjalda.
Hafnarstjóri sér um innheimtu allra gjalda skv. gjaldskrá þessari og skal greiða gjöldin á
skrifstofu sveitarfélagsins. Heimilt er að leita samþykkis skrifstofunnar til notkunar
greiðslumiðlunar við uppgjör skulda.
Séu gjöldin ekki greidd á réttum gjalddögum er áskilið að reikna dráttarvexti af gjaldfallinni
fjárhæð skv. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001.
23. gr.
Skipstjóri og eigandi skips bera ábyrgð á greiðslu gjalda þeirra sem greiða ber til Hafnarsjóðs
Skagafjarðar vegna skipsins. Er skipstjóra skylt við komu til hafnar að gefa hafnarstjóra
upplýsingar um skipið í samræmi við ákvæði 5. mgr. reglugerðar nr. 326/2004 um hafnamál og
afhenda hafnarstjóra þjóðernis- og skrásetningarskírteini skipsins, ef hafnarstjóri krefst þess
vegna ófullnægjandi upplýsinga frá skipstjóra og hefur hafnarsjóður haldsrétt yfir skírteinum
uns gjöld eru greidd. Töf og tjón sem af þessu hlýst er einvörðungu á ábyrgð og kostnað
greiðanda áfallinna gjalda.
Áfallin gjöld skal greiða áður en skip fer burt úr höfninni og enginn skipstjóri getur vænst þess
að fá afgreiðslu fyrir skip sitt hjá sýslumanni eða tollstjóra, nema hann sanni með vottorði frá
hafnarstjóra að hann hafi greitt öll gjöld sín til hafnarinnar.
24. gr.
Vörugjald greiðist af öllum vörum sem eru affermdar, afhentar eða fluttar, eða á annan hátt
sjóleiðis eða landleiðina, inn fyrir mörk hafnarinnar. Vörugjaldið reiknast skipi til skuldar áður
en skip hefur siglingu, nema um annað sé sérstaklega samið. Vörugjald er á ábyrgð
farmflytjanda og er afhending vöru án greiðslu vörugjalds á hans ábyrgð.
Ef vörur eru fluttar úr einu skipi í annað greiðir sá vörugjaldið sem affermir.
Vörugjald af vörum sem koma til hafnarinnar fellur í gjalddaga þegar skipið sem vörurnar flytur
er komið í höfnina og vörugjald af vörum sem fluttar eru úr höfninni fellur í gjalddaga þegar
vörurnar eru komnar í skip. Skipstjóra og afgreiðslumanni skips er óheimilt að afhenda vörurnar
fyrr en gjaldið er greitt.
25. gr.
Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má ávallt tryggja með að för að undangengnum dómi.
Skipagjöld eru tryggð með með lögveði í viðkomandi skipi eða vátryggingafé. Gengur það veð
í tvö ár fyrir samningsveðkröfum sbr. Ákvæði 2 mgr. 21. gr. hafnarlaga nr. 61/2003. Hafnarsjóði
Skagafjarðar er heimilt að krefjast frekari trygginga fyrir greiðslu áfallinna gjalda ef ástæða
þykir til.
26. gr.
Öll gjöld í gjaldskrá þessari eru án virðisaukaskatts. Hafnarsjóði Skagafjarðar er skylt að
innheimta virðisaukaskatt af öllum gjöldum í gjaldskrá þessari, sbr. 3 tl. 3. gr. laga nr. 50/1988
um virðisaukaskatt.
Gildistaka.
Gjaldskrá þessi fyrir Hafnarsjóð Skagafjarðar er samþykkt af umhverfis- og
samgöngunefnd 24.11.2022 skv. hafnalögum nr. 61/2003 ásamt síðari breytingum, og 37. gr.
reglugerðar um hafnamál nr. 326/2004 og staðfest af sveitarstjórn 14. desember 2022
Gjaldskráin gildir frá 1.janúar 2023 og verður aðgengileg á heimasíðunni
http://hafnir.skagafjordur.is/ og á heimasíðu sveitarfélagsins Skagafjarðar
http://skagafjordur.is/. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá fyrir Sauðárkrókshöfn og Hofsóshöfn
vegna ársins 2022.
Sauðárkróki 19. desember 2022
________________________________________
Sigfús I. Sigfússon
sveitarstjóri