Áburður fyrir K.S.

Uppskipun á áburði.
Uppskipun á áburði.

Á sunnudag kom flutningaskipið Wilson Hawk með 2.400 tonn af áburði og 260 tonn af timbri fyrir Kaupfélag Skagfirðinga og 1.210 tonn af áburði fyrir Bústólpa á Akureyri. Reiknað er með að uppskipun ljúki í kvöld.

Þinganes SF-25 var til löndunar á sunnudag með 10 tonn af rækju sem fór til vinnslu á Grundarfjörð og tæp 20 tonn af þorski ásamt smáslöttum af öðrum tegundum sem fóru á Fiskmarkað Suðurnesja í Hafnarfirði.

Klakkur SK-5 landaði í gær með ca. 75 tonn af þorski og 19 tonn af öðrum tegundum sem fóru á markað í Reykjavík.

Í morgun kom Nökkvi inn með 19 kör af rækjusem fer til vinnslu á Grundafjörð ásamt slatta af soðinni rækju sem fer beint í útflutning.


Svæði

Sveitarfélagið Skagafjörður    |   hofnin@skagafjordur.is   |   Sími (+354) 453 5169