13.12.2019
Á Eyrinni flæddi sjór eftir strandveginum, inn á sláturhús og víðar, möl og grjót kastaðist langt upp á land. Opna varð rás til að hleypa vatnsaganum ofan í höfnina sunnan við móttöku FISK-seafood. Drangey sleit nokkra sabba og togvír auk þess sem einn bryggjupolli slitnaði upp. Ekki urðu slys á fólki.
Nokkrar myndir má sjá hér: https://www.facebook.com/port89/?eid=ARAPN0mk3-us_abHVb3in187cW4ip5TyVEB6EOdwZaMgeNT6lAsHvc7KUqtRa06LnsyFbmStQefwNY3f